Við viljum þakka aðstandendum ráðstefnunnar Læsi – Lykill að andans auði fyrir fróðlega ráðstefnu um helgina og veglegar móttökur. Einnig viljum við þakka þeim sérstaklega sem sóttu málstofurnar okkar, Vörður og vegvísir og Lestrarkennsla í 1.bekk Hamraskóla. Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar og eru okkur mikil hvatning. ![]()
Glærur frá málstofunum er hægt að nálgast undir flipanum Kynningar, hér ofar á síðunni.
Kærar þakkir!
Skrifað í Uncategorized
Læsi – lykill að andans auði
Við Hamraskólakonur verðum á ráðstefnunni á Akureyri um helgina að kynna Vörður og vegvísi – heildstæða íslenskukennslu í Hamraskóla.
Hér er hægt að kynna sér dagskrá ráðstefnunnar betur.
www.unak.is
Skrifað í Uncategorized
Nýtt netfang
Við höfum fengið nýtt netfang. Fyrirspurnir er nú hægt að senda á:
Skrifað í Uncategorized
Takk
Við þökkum öllum þeim sem sýndu verkefninu áhuga og heimsóttu okkur í vor.
Skrifað í Uncategorized
Þökkum frábærar viðtökur
Það var mar
gt um manninn á árlegri Öskudagsráðstefnu Menntasviðs Reykjavíkur í gær. Kynning okkar Hamrakvenna á Vörðum og vegvísi tókst ljómandi vel og viðtökurnar voru hreint frábærar.
Þökkum allt hrósið og hvatningarorðin. Viljum líka minna á að sjón er sögu ríkari og hvetjum alla áhugasama um að hafa samband og/eða kíkja í heimsókn til okkar í Hamraskóla.
Skrifað í Uncategorized
Undirbúningur fyrir Öskudagsráðstefnu
Við erum nú á fullu að undirbúa fyrirlesturinn okkar fyrir Öskudagsráðstefnuna á morgun, þann 17. febrúar. Allt er á góðri leið að smella saman. Mikil tilhlökkun í hópnum. Vonumst til að sjá sem flesta á morgun.
Skrifað í Uncategorized | Tags: Öskudagsráðstefna
Velkomin/n
Þá erum við loksins komnar á vefinn. Hér verður hægt að fylgjast með þróunarverkefni okkar Vörður og vegvísir. Við, sem stöndum að þessum vef, erum kennarar á yngsta stigi í Hamraskóla og höfum verið að vinna að þessu verkefni í ár.
Við hvetjum þig til að skrá þig á póstlistann til að fá upplýsingar þegar eitthvað nýtt kemur inn á vefinn.
Skrifað í Uncategorized
