Þróunarverkefnið

Um þróunarverkefnið Vörður og Vegvísir

Eins og kennara er háttur erum við í Hamraskóla alltaf að velta því fyrir okkur hvernig við getum náð enn betur til nemenda okkar og hvernig við getum gert námið áhugaverðara og markvissara þannig að nemendum okkar þyki gaman að læra.

Við heyrðum fyrst af Ardleigh Green Junior School á Öskudagsráðstefnu árið 2008.  Þá kviknaði neisti sem varð til þess að við heimsóttum skólann og kynntumst John Morris skólastjóra hans. Í framhaldi af þeirri heimsókn fóru nokkrir kennarar á námskeið á vegum Menntasviðs, þar sem John Morris kynnti hugmyndir sínar um ritunarkennslu. Aftur fór hópur kennara frá Hamraskóla til London vorið 2009.  Nú var ekki aftur snúið og við ákváðum að breyta íslenskukennslu okkar og nýta okkur þær hugmyndir sem við fengum í heimsóknunum til Ardleigh Green Junior School.

Þróunarverkefnið okkar, Vörður og Vegvísir, gekk út á að  endurskipuleggja alla íslenskukennslu í 1. – 5. bekk. Markmið Aðalnámskrár voru yfirfarin og sundurgreind, kennsluskipulagi breytt, amboð tekin í notkun og talað og hlustað tekið inn sem mikilvægur þáttur kennslunnar.

Veturinn 2009 – 2010 hófst kennsla eftir þessu skipulagi í Hamraskóla. Útbúin hafa verið amboð fyrir nemendur, kennsla hjá 1. – 5. bekk samræmd og íslenska orðin að fagi sem nemendur vilja ekki missa af.

Nánar um okkur.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.