Lestrarkennsla í 1. bekk

Síðustu fjögur ár hefur staðið yfir þróunarvinna í lestrarkennslu í Hamraskóla. Lestrarkennslan byggir m.a. á hraðri innlögn stafa en þrír stafir eru að meðaltali lagðir inn á viku.  Notast er við texta fyrir hverja viku sem unnið er með auk annara verkefna.  Nemendur fá lestrarbækur um leið og stafainnlögn hefst og eru þær í beinum tengslum við innlögnina hverju sinni.

Samhliða þróunarvinnunni hefur Þórunn Elídóttir útbúið  námsgögn og samið  léttlestrarbækur  sem hafa gefið góða raun í lestrarkennslu í Hamraskóla. 

Til að fá nánari upplýsingar: vordurogvegvisir@gmail.com

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.